Fotbolti.net
22.02.26 - 14:34
Brynjar Ingi Erluson

Wirtz meiddist í upphitun

Wirtz meiddist í upphitun
Canon

Mynd: EPA

Þýski sóknartengiliðurinn Florian Wirtz var nefndur í byrjunarlið Liverpool fyrir leikinn gegn Nottingham Forest í dag, en var kippt út á síðustu stundu vegna meiðsla.
Wirtz var að finna taktinn eftir hæga byrjun frá því hann kom frá Bayer Leverkusen á síðasta ári.

Frá áramótum hefur hann komið að sjö mörkum og vonaðist hann til að halda áfram á sömu braut í dag, en Arne Slot var neyddur til að gera breytingu rétt fyrir leik.

WIrtz meiddist í upphitun liðsins og kom því Curtis Jones inn í hans stað.

Áfall fyrir Liverpool sem er án margra leikmanna vegna meiðsla.

Staðan í leik Forest og Liverpool er markalaus þegar rúmur hálftími er búinn af leiknum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.