Fotbolti.net
22.03.21 - 19:34
Brynjar Ingi Erluson

Dembele: Ég var veikburða þegar ég kom til Barcelona

Ousmane Dembele

Ousmane Dembele

Canon

Mynd: Getty Images

Franski vængmaðurinn Ousmane Dembele er loksins að finna sig hjá Barcelona eftir ansi erfið ár á Spáni en hann hefur styrkt sig mikið síðasta árið.
Barcelona keypti Dembele frá Borussia Dortmund fyrir 105 milljónir evra.

Hann hefur glímt við erfið meiðsli frá því hann kom og þá hefur hann oft verið gagnrýndur fyrir ákvarðanatökur og lífið utan vallar en nú er annar bragur á honum.

Dembele hefur skorað 9 og lagt upp 4 á þessari leiktíð en Didier Deschamps, þjálfari franska landsliðsins, hefur verðlaunað hann fyrir gott tímabil og valið hann í hópinn fyrir leikina í þessum mánuði.

„Ég vil hafa mikið að gera og gefa allt mitt á vellinum en ég var mjög veikburða þegar ég kom til Barcelona. Ég hef styrkt mig mikið og er mun betur undirbúinn fyrir leiki," sagði Dembele við Telefoot.

„Það hefur gengið mjög vel á þessu ári og ég bætt mig mikið hjá Barcelona. Mér líður loksins vel þó ég hafi verið að glíma við erfið meiðsli síðustu þrjú árin en þetta er lífsreynsla fyrir mig," sagði hann ennfremur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.