Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 22. mars 2021 12:30
Magnús Már Einarsson
Rafa Benítez vill fá starf á Englandi
Mynd: Getty Images
„Ég vil helsta starfa á Englandi," sagði Rafael Benítez í viðtali við The Sunday Times um helgina.

„Af hverju? Ég kann vel við ensku úrvalsdeildina og fjölskyldan mín er hér."

Hinn sextugi Benitez hætti störfum hjá Dalian Pro í Kína á dögunum og er nú í leit að næsta starfi.

„Ég er með mikið af tilboðum frá Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum, Bandaríkjunum, Brasilíu og Kína en ég vil vera í Evrópu og ég vil vera í Englandi."

„Ef þetta er rétta starfið þá getum við gengið í þetta á morgun en rétta verkefnið og rétta samkeppnishæfa liðið er ekki í boði í augnablikinu svo við verðum að bíða. Ég vil ekki vera án vinnu. Ég vil komast út á völl eins fljótt og hægt er."

Athugasemdir
banner
banner