Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 22. apríl 2021 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
Zlatan framlengir um eitt ár
Mynd: Getty Images
Fréttamaðurinn virti Fabrizio Romano er búinn að staðfesta það að Zlatan Ibrahimovic hefur skrifað undir samning við AC Milan sem gildir í eitt ár.

Sænska goðsögnin verður því áfram í herbúðum Milan þar til í júní 2022 hið minnsta.

Zlatan verður fertugur í október og hefur verið gjörsamlega frábær frá komu sinni aftur til Milan. Honum tókst að lyfta leik liðsins á annað stig með nærveru sinni og raðaði inn mörkunum meðan hann var heill heilsu.

Zlatan er kominn með 15 mörk í 17 deildarleikjum það sem af er tímabils en er aðeins búinn að skora eitt eftir meiðsli í mars.


Athugasemdir
banner
banner
banner