Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. maí 2022 18:00
Brynjar Ingi Erluson
Balotelli í ham í Tyrklandi - Skoraði fimm og eitt með Rabona-spyrnu
Mario Balotelli var sjóðandi heitur í dag
Mario Balotelli var sjóðandi heitur í dag
Mynd: Getty Images
Ítalski framherjinn Mario Balotelli skemmti áhorfendum í lokaleik tyrknesku úrvalsdeildarinnar með því að skora fimm mörk í 7-0 sigri Adana Demirspor á Göztepe.

Balotelli hefur alltaf verið með gæði og hefur þetta aldrei verið spurning um það.

Hausinn hefur vafist fyrir honum en hann er að elska lífið í Tyrklandi að það virðist.

Hann mætti á lokadegi tyrknesku deildarinnar og skoraði heil fimm mörk fyrir liðið og endar með 18 mörk þetta tímabilið og því næst markahæstur.

Sjöunda mark Adana var sérstaklega smekklegt en hann tók fimm eða sexföld skæri áður en hann skoraði með Rabona-spyrnu. Sjón er sögu ríkari.


Athugasemdir
banner
banner
banner