Leeds berst fyrir sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni en liðið heimsækir Brentford í lokaumferðinni í dag.
Liðið hefur saknað Patrick Bamford en hann hefur misst af síðustu sjö leikjum vegna meiðsla. Stuðningsmenn Leeds gerðu sér vonir um að hann myndi spila í dag en hann er ekki í hóp.
Ástæða þess er sú að hann er með Covid en þetta staðfesti Jesse Marsch í dag.
„Bamford er í góðu formi og var tilbúinn í leikinn en svo fyrir tveimur dögum greindist hann með Covid og hann hefur verið mjög veikur og ekki getað staðið uppúr rúminu," sagði Marsch.
Athugasemdir