Kylian Mbappe, framherji Paris Saint-Germain, endaði tímabilið í Frakklandi með stæl og endaði bæði markahæstur og með flestar stoðsendingar en það aldrei áður gerst í frönsku deildinni.
Mbappe skoraði þrennu í 5-0 sigri á Metz í gær en hann var að fagna nýjum þriggja ára samningi við PSG.
Þessi launahæsti leikmaður heims endaði því tímabilið með 28 deildarmörk og var því markahæsti maður deildarinnar en þar að auki lagði hann up 17 mörk og var með flestar stoðsendingar.
Þetta hefur aldrei áður gerst í frönsku deildinni og Mbappe því að setja nýtt met.
Mbappe kom að 63 mörkum í 46 leikjum í öllum keppnum með PSG á tímabilinu.
🗣️ Yes sir! @KMbappe ends the season at the top of the scorers and assists rankings of #Ligue1 🙌❤️💙
— Paris Saint-Germain (@PSG_English) May 22, 2022
28 goals ⚽️
17 assists 👟 pic.twitter.com/8jt5WMSQX1
Athugasemdir