Fotbolti.net
22.05.26 - 20:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Vítaklúður í blálokin í nýliðaslagnum - Skoglund hetja Vals

Besta deildin: Vítaklúður í blálokin í nýliðaslagnum - Skoglund hetja Vals
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík fékk Þór í heimsókn í nýliðaslag í kvöld. Heimamenn hafa byrjað tímabilið vel en Þórsarar hafa tapað fjórum leikjum í rauð.

Keflvíkingar fengu draumabyrjun þegar Marin Brigic skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Þorláki Breka Baxter.
Keflvíkingar réðu lögum og lofum í fyrri hálfleiknum en gestirnir náðu ekki neinni tilraun að marki en staðan var 1-0 í hálfleik.

Stefan Ljubicic fékk dauðafæri til að tvöfalda forystu Keflvíkinga snemma í seinni hálflleik en Aron Birkir Stefánsson bjargaði á síðustu stundu.

Þór náði loks að ógna þegar tuttugu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma þegar Fannar Daði Malmquist Gíslason átti skot en Ásgeir Orri Magnússon varði vel frá honum.

Þórsarar sóttu í sig veðrið undir lokin og Ásbjörn Líndal Arnarsson fékk gott færi til að jafna metin en hann skaut í varnarmann.

Þór fékk úrvalstækifæri til að jafna metin í uppbótatíma þegar Ásgeir Orri var brotlegur inn á teignum og vítaspyrna dæmd. Einar Freyr Halldórsson steig á punktinn en skaut í utanverða stöngina. Nær komust Þórsarar ekki og sigur Keflvíkinga staðreynd.

KA fékk Val í heimsókn. Sveinn Margeir Hauksson hefði getað komið KA yfir eftir hálftíma leik en hitti ekki boltann í góðu færi.

Valur náði forystunni þegar Tryggvi Hrafn Haraldsson átti skot í stöngina, Albin Skoglund var fyrstur að átta sig og komst fyrstur í boltann og skoraði örugglega.

Danijel Dejan Djuric var hársbreidd frá því að jafna metin undir lok fyrri hálfleiks en hann setti boltann í stöngina.

Bæði lið fengu fín færi til að skora í seinni hálfleik. Hallgrímur Mar Steingrímsson fékk síðasta tækifærið í blálokin en skaut framhjá úr aukaspyrnu.

Keflavík 1 - 0 Þór
1-0 Marin Brigic ('6 )
1-0 Einar Freyr Halldórsson ('94 , misnotað víti)
Lestu um leikinn

KA 0 - 1 Valur
0-1 Albin Skoglund ('41 )
Lestu um leikinn
Albin Skoglund

Albin Skoglund

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.