
Byrjunarlið Breiðabliks og KR: Höskuldur bekkjaður - KR endurheimtir lykilmenn

Fyrirliðinn á bekknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi snýr aftur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliðinn á bekknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson tekur sér sæti á bekknum. Í hans stað kemur Anton Logi Lúðvíksson.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gerir fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá 2-2 jafntefli gegn Fram síðastliðinn sunnudag.
Arnór Ingvi Traustason, Michael Akoto og Finnur Tómas Pálmason snúa allir aftur inn í liðið eftir að hafa glímt við meiðsli. Þá kemur Eiður Gauti Sæbjörnsson jafnframt inn í liðið.
Úr liðinu víkja þeir Hrafn Tómasson, Alexander Rafn Pálmason, Hjalti Sigurðsson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson. Ástbjörn Þórðarson og Stefán Árni Geirsson eru hvorugir í leikmannahóp KR vegna meiðsla.
Byrjunarlið Breiðablik
Anton Ari Einarsson, Ívar Örn Árnason, Viktor Karl Einarsson, Óli Valur Ómarsson, Aron Bjarnason (fyrirliði), Anton Logi Lúðvíksson, Ágúst Orri Þorsteinsson, Davíð Ingvarsson, Viktor Örn Margeirsson, Kristófer Ingi Kristinsson, Andri Rafn Yeoman
Byrjunarlið KR
Halldór Snær Georgsson, Michael Osei Akoto, Finnur Tómas Pálmason, Eiður Gauti Sæbjörnsson, Aron Sigurðarson (fyrirliði), Luke Morgan Conrad Rae, Amin Cosic, Gabríel Hrannar Eyjólfsson, Arnór Ingvi Traustason, Sigurður Breki Kárason, Orri Hrafn Kjartansson

Arnór Ingvi snýr aftur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




