22.05.26 - 22:27
Kári Snorrason
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Auglýsing

Ólafur Ingi var sáttur að leik loknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar fagna marki í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi var sáttur að leik loknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er virkilega sáttur klárlega. Flottur leikur hjá okkur. Mikilvæg þrjú stig,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason í viðtali við Fótbolta.net eftir 6-3 sigur Breiðabliks á KR á Kópavogsvelli fyrr í kvöld.

TENGT EFNI
Besta deildin: Markaveisla í fyrsta tapi KR - Víkingur með stórsigur
Má segja að leikplanið hafi gengið fullkomlega upp?
„Jú jú, strákarnir voru bara tilbúnir frá fyrstu mínútu. Mér fannst við vera yfir í ákefð og návígum. Við kláruðum það mjög vel. Við vorum agressívir að fara aftur fyrir þá og völdum vel þar sem skapaði fullt af góðum tækifærum. Við nýttum þau ágætlega í dag, hefðum getað skorað fleiri.“
Blikar voru gagnrýndir fyrir sóknarleikinn í upphafi móts en hafa svarað þeirri gagnrýni vel.
„Við vitum alveg hvað við erum með í höndunum. Þetta lið er ótrúlega gott. Margir leikmenn sem geta skorað og komið að mörkum. Mér fannst sú umræða hafa verið búin til í byrjun móts. Ég sagði samt í viðtali fyrir leik að það væri erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna leiki en við gerum það samt,“ sagði Ólafur Ingi.
Ólafur sagði jafnframt að Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, hafi verið tæpur og því byrjað á bekknum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.