Fotbolti.net
22.05.26 - 21:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Slæm meiðsli skyggðu á markaleik - Orri með tvennu fyrir ÍR

Tveir sjúkrabílar keyrðu inn á völlinn í Mosó.

Tveir sjúkrabílar keyrðu inn á völlinn í Mosó.

Canon

Mynd: Livey

Lengjudeildin
Það gekk mikið á þegar Afturelding fékk Þrótt í heimsókn í 5. umferð Lengjudeildarinnar í kvöld. Heimamenn komust yfir snemma leiks þegar Elmar Kári Enesson Cogic skoraði eftir laglegt samspil við Joacim Holtan.
Stuttu síðar kom upp hræðilegt atvik þar sem Axel Óskar Andrésson og Aron Snær Ingason skullu harkalega saman. Hringja þurfti á sjúkrabíl og leikurinn var stopp í dágóðan tíma. Aron Snær var fluttur á sjúkrahús en Axel Óskar gekk af velli.

Kári Kristjánsson jafnaði metin með frábæru marki beint úr aukaspyrnu og í kjölfarið hófst ótrúleg atburðarás. Bart Kooistra kom Aftureldingu yfir strax í kjölfarið en Sigurður Egill Lárusson svaraði um hæl og jafnaði metin, þrjú mörk á tveimur mínútum.

Afturelding fékk vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks og Elmar Kári steig á punktinn og skoraði. Sigurður Egill jafnaði metin í þriðja sinn með frábæru marki beint úr aukaspyrnu. Óðinn Bjarkason tryggði Aftureldingu síðan sigurinn.

Þróttur spilaði síðustu mínúturnar manni færri þegar Magnús Þórðarson var rekinn af velli.

ÍR komst aftur á sigurbraut þegar liðið fékk HK í heimsókn. Orri Bjarkason skoraði tvennu áður en Stefán Þór Pálsson innsiglaði sigurinn. Alexander Örn Guðmundsson náði að klóra í bakkann fyrir HK en nær komust þeir ekki.

Þá fékk Leiknir Grindvíkinga í heimsókn. Fyrri hálfleikurinn var bragðdaufur og staðan var markalaus þegar flautað var til loka hálfleiksins.

Christian Bjarmi Alexandersson var nálægt því að koma Grindavík yfir en skaut framhjá úr góðu færi. Daði Bærings Halldórsson fékk einnig færi fyrir Leikni en mörkin létu á sér standa og markalaust jafntefli niðurstaðan.

Afturelding 4 - 3 Þróttur R.
1-0 Elmar Kári Enesson Cogic ('6 )
1-1 Kári Kristjánsson ('35 )
2-1 Bart Kooistra ('36 )
2-2 Sigurður Egill Lárusson ('37 )
3-2 Elmar Kári Enesson Cogic ('45 , víti)
3-3 Sigurður Egill Lárusson ('59 )
4-3 Óðinn Bjarkason ('69 )
Lestu um leikinn

ÍR 3 - 1 HK
1-0 Orri Bjarkason ('51 )
2-0 Orri Bjarkason ('76 )
3-0 Stefán Þór Pálsson ('87 )
3-1 Alexander Örn Guðmundsson ('88 )
Lestu um leikinn

Leiknir R. 0 - 0 Grindavík
Lestu um leikinn
Lengjudeildin: Slæm meiðsli skyggðu á markaleik - Orri með tvennu fyrir ÍR
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Þróttur R.15+1730
3Fylkir15+1030
4HK16+928
5Njarðvík15+223
6Grótta14+122
7Vestri15-521
8Leiknir R.15-419
9ÍR16-916
10Grindavík15-514
11Völsungur15-1511
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.