Fotbolti.net
22.05.26 - 13:00
Kári Snorrason

Líkleg byrjunarlið Breiðabliks og KR: Fer Óli í þriggja manna?

Frá viðureign liðanna á síðasta ári.

Frá viðureign liðanna á síðasta ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik tekur á móti KR í stórleik kvöldsins í Bestu deildinni, leikar hefjast klukkan 19:15 á Kópavogsvelli.

Breiðablik er í fjórða sæti, sjö stigum á eftir KR sem er í öðru sæti. KR-ingar eru jafnir Víkingum á stigum en með lakari markartölu.

Það er af nægu að taka þegar litið er til byrjunarliðanna og verður fróðlegt að sjá hvernig liðin eru þegar þau verða opinberuð 18:15.


Við spáum því að Ólafur Ingi Skúlason fari í þriggja hafsenta kerfi eins og hann gerði gegn Víkingi í fyrstu umferð. Anton Logi kemur inn á miðjuna í stað Viktors Karls Einarssonar og þá fer Andri Rafn Yeoman út í hægri vængbakvörð í stað Óla Vals Ómarssonar.

Sóknarlínan helst þá óbreytt frá síðasta leik Breiðabliks þar sem Kristófer Ingi leiðir línuna, Aron Bjarnason og Ágúst Orri Þorsteinsson verða sitthvorum megin við hann.

Fari svo að Ólafur Ingi verði með fjögurra manna varnarlínu er möguleiki á að Óli Valur komi inn í hægri bakvörð og Andri Rafn færist upp á miðju.



KR er að endurheimta stóra pósta frá leiknum gegn Fram í síðustu umferð. Óskar Hrafn sagði í viðtali eftir þann leik að hann byggist við að Finnur Tómas, Arnór Ingvi og Ástbjörn Þórðarson verði allir klárir fyrir leik kvöldsins.

Þá tippum við á að Eiður Gauti snúi aftur í liðið og að Orri Hrafn, Hjalti Sigurðsson, Gyrðir Hrafn og Sigurður Breki fara allir út úr byrjunarliðinu gegn Fram.
Anton Logi hefur aðeins byrjað einn leik í Bestu deildinni það sem af er tímabils.

Anton Logi hefur aðeins byrjað einn leik í Bestu deildinni það sem af er tímabils.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi er að snúa aftur eftir höfuðmeiðsli.

Arnór Ingvi er að snúa aftur eftir höfuðmeiðsli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ástbjörn hefur skorað þrjú mörk í sex leikjum.

Ástbjörn hefur skorað þrjú mörk í sex leikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.