Fotbolti.net
22.05.26 - 10:27
Elvar Geir Magnússon

Man City tilkynnir að Guardiola sé að hætta (Staðfest)

Man City tilkynnir að Guardiola sé að hætta (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Manchester City hefur staðfest að síðasti leikur Pep Guardiola með stjórnartaumana hjá félaginu verður gegn Aston Villa á sunnudag.

Undir stjórn Guardiola vann City sautján stóra titla, þar á meðal sex Englandsmeistaratitla á tíu tímabilum. Þá vann hann Meistaradeildina með liðinu. Á hans síðasta tímabili vann City FA-bikarinn og deildabikarinn.

„Ekki spyrja mig út í ástæðuna fyrir því að ég er að hætta. Það er engin ástæða, en innst inni veit ég að þetta er rétti tíminn. Ekkert varir að eilífu," segir Guardiola.
Þessi tíðindi koma þremur dögum eftir að Manchester City þurfti að játa sig sigrað í baráttunni við Arsenal um enska meistaratitilinn.

Enzo Maresca fyrrum stjóri Chelsea, sem var áður aðstoðarmaður Guardiola hjá City, mun að öllum líkindum taka við City.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City3+59
2Arsenal3+59
3Hull City3+37
4Chelsea3+16
5Brentford3+35
6Liverpool3+25
7Newcastle3+25
8Everton3+25
9Leeds3+15
10Brighton3+34
11Man Utd3+14
12Sunderland304
13Crystal Palace3-43
14Ipswich Town3-43
15Bournemouth3-12
16Nott. Forest3-12
17Aston Villa3-51
18Tottenham3-51
19Fulham3-30
20Coventry3-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.