22.05.26 - 22:00
Kári Snorrason
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Auglýsing

Óskar Hrafn Þorvaldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Breki Kárason skoraði tvö mörk í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn Þorvaldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR tapaði 6-3 fyrir Breiðabliki á Kópavogsvelli fyrr í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, eftir leik.
Óskar var ósáttur með spilamennsku síns liðs og sagði leikinn hafa verið kennslustund í auðmýkt.

TENGT EFNI
Besta deildin: Markaveisla í fyrsta tapi KR - Víkingur með stórsigur
„Ef maður reynir að greina þetta beint eftir leik þá vorum við ekki klárir að mæta þeim. Við vorum eftir á í öllum aðgerðum. Vörðumst illa, vantaði hreyfingu á boltann. Þetta var léleg frammistaða, það er hægt að segja það. Plús það að Blikaliðið spilaði vel,“ segir Óskar.
Mun svona tap leggjast þungt á hópinn?
„Það held ég ekki. Við erum með svarta beltið í að tapa fótboltaleikjum frá því í fyrra. Ég yrði mjög hissa ef þetta myndi leggjast þungt á hópinn.“
Tap kvöldsins er fyrsta tap KR í deild á tímabilinu.
„Það er svo hættulegt alltaf þegar það er búið að ganga rosalega vel. Allir í himnaríki og svo taparu einum leik. Það er auðvitað leiðinlegt að tapa eins og við töpum en hvað áttu að gera? Áttu að fara heim og hýða þig með belti?“
„Eigum við að finnast allt ömurlegt og leggjast undir sæng? Ég held ekki. Við verðum að viðurkenna að við vorum ekki nægilega góðir. Þetta var kennslustund í auðmýkt. Ef þú ferð of nálægt sólinni með vængi úr vaxi þá geta þeir bráðnað. Það er ekki höggið sem skilgreinir okkur heldur hvernig við stöndum upp,“ sagði Óskar að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.