22.05.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
Tuchel: Stones er enn í heimsklassa

John Stones, varnarmaður enska landsliðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn John Stones hefur aðeins spilað átta deildarleiki fyrir Manchester City á tímabilinu vegna meiðsla. Þrátt fyrir það er hann í enska landsliðshópnum sem fer á HM.
Stones yfirgefur City í sumar en var valinn í HM hópinn frekar en Harry Maguire.
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari var spurður að því á fréttamannafundi hvort Stones væri tilbúinn að spila stórt hlutverk?

TENGT EFNI
Svona er HM hópur Englands - Umdeilt val Tuchel
„Já annars hefði ég ekki valið hann. Hann er spenntur fyrir því að koma og ég er spenntur fyrir því að fá hann. Ég hef fulla trú á John. Hann er heimsklassa varnarmaður með mikla leikgreind, frábær karakter og sigurvegari," segir Tuchel.
„Þegar hann er að spila sýnir hann að hann er enn á hæsta klassa. Við höfum greint æfingar hjá honum líka. Við spilum tvo vináttulandsleiki fyrir mót og þar er tækifæri til að láta hann spila. Við vonum og trúum að hann muni eiga öflugt mót fyrir okkur."