Fotbolti.net
22.05.26 - 14:51
Kári Snorrason

Tveir leikir færðir á sama tíma og Víkingur - KR

Frá leik Stjörnunnar og Breiðabliks á síðasta ári.

Frá leik Stjörnunnar og Breiðabliks á síðasta ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Vegna leikja í Mjólkurbikarnum hafa leikir ÍA gegn Val og Stjörnunnar gegn Breiðabliki verið færðir aftur um tvo daga.

Upphaflega átti að spila leikina 14. júní en vegna leikja í Mjólkurbikarnum þann 12. júní voru leikirnir færðir til 16. júní.

Þann 16. júní mætast tvö efstu lið deildarinnar sem stendur, KR og Víkingur, og verða því þessir þrír leikir spilaðir á sama tíma.
þriðjudagur 16. júní
Besta karla
19:15 ÍA-Valur (ELKEM völlurinn)
19:15 Stjarnan-Breiðablik (Samsungvöllurinn)
19:15 Víkingur R.-KR (Víkingsvöllur)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.