Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 22. júní 2021 17:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Keflvíkingar með netin úti - „Að missa hann er erfitt"
Miðvörðurinn Ísak Óli Ólafsson var seldur til Esbjerg frá SönderjyskE á sunnudag. Ísak hafði verið á láni frá SönderjyskE hjá Keflavík en er farinn til Danmerkur og er í undirbúningi með Esbjerg fyrir komandi átök í dönsku B-deildinni.

Eysteinn Húni Hauksson, annar af þjálfurum Keflavíkur, var til viðtals eftir sigur gegn Leikni á sunnudag. Eysteinn tjáði sig þar um Ísak Óla. Fyrirliðinn Magnús Þór Magnússon og Nacho Heras léku í miðvarðastöðunum hjá Keflavík í leiknum.

Eftir brotthvarf Ísaks, komið þið til með að leita fyrir ykkur að miðverði?

„Við skoðum þetta í rólegheitunum, við erum alltaf með netin úti. Ísak Óli er að sjálfsögðu frábær leikmaður og frábær karakter sem gerði mikið fyrir okkur, við vissum það þegar upp kom sá möguleiki að fá hann. Hann er sterkur karakter sem er leiðandi í hópnum. Að missa hann er erfitt þannig ég reikna með að við bætum eitthvað við hópinn. Hvort sem það verður akkúrat í hans stöðu eða ekki, það kemur í ljós," sagði Eysteinn.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 0 Leiknir R.
Eysteinn: Mjög mikilvægt skref hjá okkur
Athugasemdir
banner
banner