Fotbolti.net
22.06.26 - 14:33
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Segir Alfreð þekkja sig upp á tíu - „Hafa ekki fengið einn frídag síðustu sjö mánuði“

„Erum í stjórnunarstöðum í stærsta félagi í Noregi“

„Erum í stjórnunarstöðum í stærsta félagi í Noregi“

Canon

Mynd: Samsett

Freyr Alexanderson er tekinn við sem nýr þjálfari norska stórliðsins Rosenborg. Hann var látinn fara sem stjóri Brann í Noregi í upphafi mánaðar en var ekki lengi án starfs.

Fyrrverandi landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg og er því Íslandstengingin við félagið mikil.

Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag var slegið á þráðinn til Freys sem ræddi um nýja starfið í Lerkendal og spennandi samstarf með Alfreð.
Íslensk yfirtaka hjá stærsta félagi Noregs - „Lið í miklum vandræðum"
TENGT EFNI

Íslensk yfirtaka hjá stærsta félagi Noregs - „Lið í miklum vandræðum"

Einungis úthugsaðar ákvarðanir
Greint var frá því að stjórn Rosenborg hafi ýtt nafni Freys í áttina að Alfreði en ekki öfugt líkt og norskir stuðningsmenn bjuggust ef til vill við.

„Þið eruð að lesa rétt í það, það munu pottþétt einhverjir hugsa um þessa Íslandstengingu. En þið þekkið manninn sem Alfreð Finnbogason hefur að geyma. Hann tekur ekki ákvarðanir nema að þær séu úthugsaðar. Hann er góður í að taka góðar ákvarðanir,“ segir Freyr.

Veit nákvæmlega hvað hann fær í Freysa
Freyr fékk Alfreð til Lyngby fyrir fjórum árum og var hann á mála hjá félaginu í eitt ár. Samkvæmt Transfermarkt spilaði Alfreð 17 leiki undir stjórn Freys hjá Lyngby en þeir unnu jafnframt saman í landsliðinu.

„Ég var þjálfarinn hans fyrir þremur árum, þannig að hann veit nákvæmlega hvað hann fær í mér. Ég held að hann hafi gert allt rétt í að láta stjórnendur taka fyrstu skrefin og meta út frá því. Það var mikilvægt líka fyrir mig. Við erum í stjórnunarstöðum í stærsta félagi í Noregi og einum af fimm stærstu klúbbum í Skandinavíu. Við þurfum að taka réttar ákvarðanir og hafa ferlið rétt. Þar er Alfreð mjög sterkur.“

Á slæmum stað
Eftir ellefu umferðir í Eliteserien, norsku úrvalsdeildinni, situr Rosenborg í 15. sæti af 16 liðum. Liðið hefur unnið tvo sigra og er með níu stig. Rosenborg, sem einokaði deildina um árabil, hefur ekki unnið norska meistaratitilinn síðan 2018.

„Það sem er að er margþætt, margar litlar ástæður sem safnast upp í snjóbolta. Alfreð og þeir sem vinna hérna núna hafa verið að setja þetta upp í rétta ferla, ég held að Alfreð og fólkið í kringum hann hafa ekki fengið einn frídag síðustu sjö mánuði. Það er búið að vera mikið af stórum og mikilvægum ákvörðunum sem þau eru búin að taka,“ segir Freyr og heldur áfram.

„Það er mikið af góðum leikmönnum í hópnum, hátt þak en liðið hefur lent í mikið af ógöngum og það þarf að koma þeim út úr þeim. Ná því besta út úr hópnum og byggja gott grunnlag fyrir næsta ár. Staðan er eins og hún er, við erum í næst neðsta sæti deildarinnar. Það er erfið staða og það þarf að komast út úr henni hratt og örugglega,“ segir Freyr að lokum.

Hægt er að hlusta á viðtalið og útvarpsþáttinn í heild sinni í spilaranum hér að neðan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Í vondum málum í deildinni.

Í vondum málum í deildinni.

Canon

Mynd: EPA

Freysi fékk Alfreð til Lyngby.

Freysi fékk Alfreð til Lyngby.

Canon

Mynd: Heimasíða Lyngby

Rosenborg mætir Man Utd í æfingaleik í júlí.

Rosenborg mætir Man Utd í æfingaleik í júlí.

Canon

Mynd: EPA

Útvarpsþátturinn - Keli í Dal draumanna og Freysi í Þrándheimi

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.