22.07.15 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Selma Dögg og Bryndís Hrönn í FH (Staðfest)

Selma Dögg og Bryndís Hrönn eru orðnar leikmenn FH.

Mynd: FH

Á dögunum gengu Selma Dögg Björgvinssdóttir og Bryndís Hrönn Kristinsdótitr til liðs við FH.
Selma Dögg er fædd 1997 og er uppalin í Val. Bryndís Hrönn er fædd 1994 og kom frá Fylki.
Hún er uppalin í Stjörnunni en lék með ÍBV í Pepsi-deildinni tímabilin 2012-2014 en skipti
yfir í Fylki í vetur.
Selma Dögg er miðvallarleikmaður en Bryndís sóknarmaður.
Orri Þórðarson þjálfari FH er ánægður með liðsstyrkinn: „Þetta eru ungar og efnilegar
stelpur. Koma þeirra breikkar hópinn og styrkir liðið í baráttunni framundan,\" er haft eftir honum í fréttatilkynningu félagsins.