22.07.15 - 17:10
Magnús Már Einarsson
Stjarnan fær sóknarmann frá Bandaríkjunum (Staðfest)

Stjörnustúlkur fá liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Stjörnustúlkur fá liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Stjarnan hefur fengið liðsstyrk fyrir toppbarátuna í Pepsi-deild kvenna en Jaclyn Nicole Softli hefur samið við félagið.
Jaclyn er 23 ára gömul en hún kemur frá Bandaríkjunum. Hún hefur meðal annars leikið með kvennaliði Seattle Sounders í W-deildinni og þar áður lék hún með Washington háskóla.
Jaclyn getur leikið sem kantmaður og í fremstu víglínu en hún er komin með leikheimild fyrir leikinn gegn Fylki í undanúrslitum Borgunarbikarsins á föstudag.
Fyrr í mánuðinum kom brasilíski miðjumaðurinn Francielle Manoel Alberto til Stjörnunnar en hún stimplaði sig inn með þrennu í 4-0 sigrinum á Fylki í fyrradag.