22.07.15 - 19:00
Arnar Geir Halldórsson
Suarez til Fiorentina (Staðfest)

Suarez yfirgefur uppeldisfélagið

Mynd: Getty Images

Suarez yfirgefur uppeldisfélagið

Mynd: Getty Images
Spænski miðjumaðurinn, Mario Suarez, er genginn til liðs við ítalska úrvalsdeildarliðið Fiorentina.
Þessi 28 ára gamli varnarsinnaði miðjumaður kemur til félagsins frá Atletico Madrid.
Þessi félög hafa átt í miklum samskiptum upp á síðkastið en á dögunum var svartfellski varnarmaðurinn Stefan Savic seldur frá Fiorentina til Atletico Madrid.
Suarez er uppalinn hjá Atletico Madrid og hefur leikið yfir 100 leiki fyrir félagið. Hann hefur einnið leikið fyrir Rayo Vallecano, Celta Vigo og Mallorca á ferli sínum.
Á síðustu leiktíð lék hann 20 deildarleiki með Atletico en Suarez hefur verið viðloðandi landsliðshóp Spánverja upp á síðkastið. Hann á þrjá A-landsleiki að baki auk fjölda leikja með yngri landsliðum Spánverja.
Suarez er ekki eini leikmaðurinn sem gekk til liðs við Fiorentina í dag. Félagið festi einnig kaup á brasilíska hægri bakverðinum, Gilberto, sem kemur til liðsins frá Botafogo.

Heimild: Fiorentina