West Ham hefur ekki fengið tilboð í Declan Rice í sumar ef marka má heimildir talkSPORT.
Rice er miðjumaður félagsins og varafyrirliði fyrir Mark Noble. Þar sem Noble var ekki oft í byrjunarliðinu í vetur var Rice oftast með fyrirliðabandið.
Rice er miðjumaður félagsins og varafyrirliði fyrir Mark Noble. Þar sem Noble var ekki oft í byrjunarliðinu í vetur var Rice oftast með fyrirliðabandið.
Rice er 22 ára og hefur verið orðaður við Chelsea, Manchester United og Manchester City en ekkert félag hefur boðið í leikmanninn að svo stöddu.
Rice á að baki 24 leiki fyrir England og var í byrjunarliði landsliðsins í öllum leikjum þess á EM. Enska liðið endaði í 2. sæti á mótinu.
Athugasemdir