22.07.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Fimm sem Arsenal gæti reynt við eftir að hafa mistekist að fá Rogers

Barcola er efstur á blaði.

Mynd: EPA

Barcola er efstur á blaði.

Mynd: EPA
Morgan Rogers var sterklega orðaður við Arsenal áður en hann var kynntur sem nýr leikmaður Chelsea í gær. Ljóst er að Arsenal þarf að leita annað eftir leikmanni vinstra megin í sóknarleik sínum.
Mirror skoðaði fimm leikmenn sem Arsenal gæti reynt við og nefnir þar fyrstan Bradley Barcola hjá PSG en áhugi félagsins á franska landsliðsmanninum er ekkert leyndarmál. Liverpool vill hinsvegar einnig fá hann og er talið líklegra eins og staðan er.

Fílabeinsstrendingurinn Yan Diomande hjá RB Leipzig virðist færast nær PSG en Arsenal gæti reynt að stela honum frá Parísarliðinu. Þessi ungi leikmaður sýndi getu sína á HM og getur spilað á báðum köntum.
Arsenal hefur lengi sýnt tyrkneska landsliðsmanninum Kenan Yildiz hjá Juventus áhuga. Ólíkt Juventus getur Arsenal boðið honum upp á Meistaradeildarfótbolta.
Framtíð Marcus Rashford er í mikilli óvissu og í slúðurpakka dagsins var talað um áhuga Arsenal á enska landsliðsmanninum. Þá er spænski landsliðsmaðurinn Nico Williams hjá Athletic Bilbao einnig nefndur hjá Mirror.

Yan Diomande í leik með Fílabeinsströndinni.

Mynd: EPA

Kenan Yildiz.

Mynd: EPA

Marcus Rashford.

Mynd: EPA

Nico Williams.

Mynd: EPA