Fotbolti.net
22.07.26 - 12:50
Elvar Geir Magnússon

Eyjakonur fá bandarískan liðsstyrk frá Kristjáni (Staðfest)

Jessica Hinton.

Jessica Hinton.

Canon

Mynd: ÍBV

Hertz
Kvennalið ÍBV hefur tilkynnt um nýjan leikmann en hún heitir Jessica Hinton og er 24 ára bandarískur varnarmaður.

Hún yfirgaf portúgalska liðið Damaiense eftir fall liðsins úr portúgölsku úrvalsdeildinni en þjálfari þess er Kristján Guðmundsson.
„Að spila fyrir félag eins og ÍBV hefur lengi verið markmið hjá mér og er ég ótrúlega þakklát fyrir tækifærið, ekki bara til að spila fyrir félagið, heldur líka til að verða hluti af þessu samfélagi hér í Vestmannaeyjum," segir Jessica við miðla ÍBV.

Hún er með mikla reynslu úr bandaríska háskólaboltanum.

„Jessica er þegar mætt á æfingar með liðinu og við getum ekki beðið eftir að sjá hana á vellinum! Bjóðum hana innilega velkomna til Eyja!" segir í tilkynningu ÍBV.

ÍBV er í fjórða sæti Bestu deildar kvenna, níu stigum frá toppliði FH.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH12+2529
2Breiðablik12+2227
3Stjarnan12+521
4ÍBV12-120
5Grindavík/Njarðvík12-715
6Þróttur R.12-513
7Fram12-1213
8Þór/KA12-512
9Valur12-1010
10Víkingur R.12-1210
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.