Fotbolti.net
22.07.26 - 11:12
Kári Snorrason

Bestur í Mjólkurbikarnum - „Hafði varið tvö víti fyrir leikinn“

Auglýsing
Fullhlaðinn Arnar.

Fullhlaðinn Arnar.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Mjólkurbikarinn
Afturelding tryggði sig í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrsta sinn í sögu félagsins í gærkvöld er liðið lagði Fylki að velli í undanúrslitum.

Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem Arnar Daði Jóhannesson, markvörður Aftureldingar, fór á kostum og varði þrjár spyrnur.

Hann gerði sér leið upp á skrifstofu Fótbolta.net í morgunsárið og tók á móti verðlaunum frá Mjólkursamsölunni ásamt því að ræða við Fótbolta.net.
Lestu um leikinn: Fylkir 4 - 5 Afturelding
Ekki þekktur vítabani
„Þetta var frábær liðsheild og geggjuð frammistaða hjá okkur strákunum að þrauka þetta í gegn. Við skorum ekki mikið en klárum þetta í vító, geggjað að verja þrjú víti og koma klúbbnum í úrslit,“ sagði Arnar aðspurður um hvernig hann gerir leikinn upp.

Þrátt fyrir að verja þrjár vítaspyrnur í gær segist Arnar ekki vera þekktur vítabani. „Nei, ég myndi ekki segja það. Ég held að aðrir hugsi það ekki heldur. Ég hef heyrt það núna, í vinnunni sérstaklega, að það voru einhverjir efins en þetta var geggjað.“

„Ég held að ég hafi varið tvö víti fyrir leikinn. En um leið og ég varði fyrsta þá fannst mér við vera með þetta. Ég fann það einhvern veginn á mér,“ segir Arnar.

Hljóp beint til Jökuls
Eftir að hafa varið þriðju vítaspyrnu sína og tryggt liðinu í úrslit þá hljóp Arnar beinustu leið upp í stúku og fagnaði með áhorfendum.

„Það var einhvern veginn allt á milljón. Alveg orðlaus. Ég hljóp beint upp í stúku og sá Jölla (Jökul Andrésson) vin minn og knúsaði hann. Svo komu allir, þetta var ein besta tilfinning sem ég hef upplifað. Alveg fáránlegt.“

Arnar fór síðar í skemmtilegt viðtal við Rúv eftir leik. „Ég var alveg gríðarlega hátt uppi, viðurkenni það. Þetta var fyrsta viðtalið mitt, ég vissi ekkert hvað ég átti að segja. Það var allt á milljón og ég missti orðin út úr mér,“ segir Arnar.



Stórkostlegur í vítaspyrnukeppninni
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, hrósaði Arnari í viðtali við Fótbolta.net eftir leik.

„Við klikkum á vítum til að klára en þá kemur Arnar alltaf bara aftur og aftur í næsta víti. Hann var algjörlega stórkostlegur í þessari vítakeppni og vel undirbúinn hjá Dodda (Þórði Ingasyni) markmannsþjálfara, þetta var frábærlega gert,“ sagði Maggi.

Viðtalið við Arnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Fagnar með Jökli Andréssyni og Andrési Guðmundssyni.

Fagnar með Jökli Andréssyni og Andrési Guðmundssyni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Varði þrjár vítaspyrnur.

Varði þrjár vítaspyrnur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ekki þekktur vítabani.

Ekki þekktur vítabani.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Afturelding í úrslit bikarsins í fyrsta sinn.

Afturelding í úrslit bikarsins í fyrsta sinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

„Hann var vel undirbúinn hjá Dodda markmannsþjálfara.“

„Hann var vel undirbúinn hjá Dodda markmannsþjálfara.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.