Alonso mætir Orra og félögum í sínum fyrsta heimaleik á Brúnni

Orri skoraði í æfingaleik á dögunum.

Mynd: EPA

Orri skoraði í æfingaleik á dögunum.

Mynd: EPA
Xabi Alonso mun mæta landsliðsfyrirliðanum Orra Steini Óskarssyni og félögum í Real Sociedad í sínum fyrsta heimaleik sem stjóri Chelsea.
Liðin mætast laugardaginn 15. ágúst á Stamford Bridge og verður leikurinn sá síðasti áður en liðin hefja leik í deildarkeppni.
Sociedad er uppeldsisklúbbur Alonso en hann lék með liðinu þar til hann gekk í raðir Liverpool árið 2004.

Bæði lið eru nýbyrjuð á undirbúningstímabili. Sociedad lék æfingaleik gegn Racing Santander á dögunum og skoraði Orri eina mark liðsins í leiknum sem lauk með 1-1 jafntefli.

Tekinn við Chelsea.

Mynd: EPA