Fotbolti.net
22.07.26 - 12:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkasta lið 12. umferðar - Breyttir tímar

Blikar skoruðu sjö gegn Val.

Blikar skoruðu sjö gegn Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í gær kláraðist 12. umferð Bestu deildar kvenna með látum. Tvö efstu liðin, Breiðablik og FH, skoruðu bæði sjö mörk í leikjum sínum.

Breiðablik og Valur voru tvö bestu lið landsins fyrir nokkrum árum en í dag er gríðarlegur munur á liðunum. Blikar fóru á Hlíðarenda í gær og unnu þar 1-7 sigur en Valur er í fallsæti.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir átti stórleik og spilaði Agla María Albertsdóttir einnig frábærlega. Líf Joostdóttir van Bemmel heldur þá áfram að heilla með frammistöðu sinni.
Sterkasta lið 11. umferðar - Sex liða fallbarátta
TENGT EFNI

Sterkasta lið 11. umferðar - Sex liða fallbarátta



FH vann 7-3 stórsigur á Stjörnunni. Hafrún Birna Helgadóttir var maður leiksins en Ída Marín Hermannsdóttir er þá búin að vera stórkostleg í sumar. Guðni og Hlynur Eiríkssynir eru þjálfarar umferðarinnar.

Fram vann þriðja leikinn í röð er þær sóttu sigur í Víkinni. Ashley Brown Orkus er búin að vera stórkostleg í marki Fram að undanförnu en Alda Ólafsdóttir skoraði tvö mörk í þessum leik.

Grindavík/Njarðvík vann 4-2 sigur á Þrótti þar sem nýr leikmaður liðsins, Santa Sanja Vuskane, skoraði þrennu og Hildur Katrín Snorradóttir var líka öflug.

Þá áttu Erin Flurey og Arna Sif Ásgrímsdóttir sterkan leik í sigri Þórs/KA gegn ÍBV á heimavelli.
Ída Marín er búin að vera mögnuð í sumar.

Ída Marín er búin að vera mögnuð í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Skoraði þrennu í fyrsta leik.

Skoraði þrennu í fyrsta leik.

Canon

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Alda skoraði tvö.

Alda skoraði tvö.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.