Fotbolti.net
22.07.26 - 12:43
Kári Snorrason

Foden framlengir

Samningsbundinn City til 2030.

Samningsbundinn City til 2030.

Canon

Mynd: EPA

Phil Foden hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Manchester City með möguleika á árs framlengingu. Fyrri samningur leikmannsins átti að renna út næsta sumar.

Foden hefur alla tíð leikið með uppeldisfélaginu. Hann hefur spilað 369 leiki fyrir City, skorað 110 mörk og unnið 20 titla.

Á síðustu tveimur tímabilum hafa frammistöður leikmannsins þó dalað og hann var ekki jafn mikill lykilmaður á síðasta tímabili og áður. Hann var til að mynda ekki valinn í HM hóp Englendinga.

Stjóraskipti urðu hjá City eftir tímabilið þegar Pep Guardiola lét af störfum eftir tíu ár við stjórnvölinn. Enzo Maresca stýrir liðinu á næsta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.