Fotbolti.net
22.09.19 - 14:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

England - Byrjunarlið: Firmino og Henderson byrja

Firmino er frammi hjá Liverpool.

Firmino er frammi hjá Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Klukkan 15:30 hefjast síðustu tveir leikir 6. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar.
Á Stamford Bridge mætast Chelsea og Liverpool í stórleik. Verður Chelsea fyrsta liðið sem nær að stöðva Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð?

Fyrir leikinn er Liverpool á toppnum með 15 stig og er Chelsea með átta stig í 12. sæti.

Frá síðasta deildarleik, sem endaði með 3-1 sigri á Newcastle, gerir Jurgen Klopp tvær breytingar. Roberto Firmino og Jordan Henderson koma inn í byrjunarliðið fyrir Oxlade-Chamberlain og Origi.

Hjá Chelsea byrjar Mason Mount þrátt fyrir að vera tæpur. N'Golo Kante er einnig í byrjunarliðinu.

Byrjunarlið Chelsea: Arrizabalaga, Christensen, Tomori, Azpilicueta, Emerson, Jorginho, Kovacic, Kante, Willian, Mount, Abraham.
(Varamenn: Caballero, Alonso, Barkley, Pedro, Zouma, Pulisic, Batshuayi)

Byrjunarlið Liverpool: Adrian, Alexander-Arnold, Matip, Van Dijk, Robertson, Henderson, Fabinho, Wijnaldum, Salah, Mane, Firmino.
(Varamenn: Kelleher, Milner, Gomez, Oxlade-Chamberlain, Lallana, Shaqiri, Brewster)

Í hinum leiknum eigast við Arsenal og Aston Villa. Arsenal er í 11. sæti með átta stig og Aston Villa með fjögur stig í fjórða sæti.

Hjá Arsenal byrjar Bukayo Saka, sem átti mjög góðan leik gegn Eintracht Frankfurt í Evrópudeildinni í liðinni viku. Hann er aðeins 18 ára gamall.

Hér að neðan eru bæði byrjunarlið.

Byrjunarlið Arsenal: Leno, Maitland-Niles, Sokratis, Luiz, Kolasinac, Xhaka, Guendouzi, Ceballos, Pepe, Aubameyang, Saka.
(Varamenn: Martinez, Ozil, Torreira, Chambers, Nelson, Willock, Martinelli)

Byrjunarlið Aston Villa: Heaton, Guilbert, Engels, Mings, Taylor, McGinn, Nkamba, Grealish, Trezeguet, Wesley, El Ghazi.
(Varamenn: Steer, Lansbury, Hourihane, Ngoyo, Jota, El Mohamady, Davis)
Saka, 18 ára gamall, er í byrjunarliði Arsenal.

Saka, 18 ára gamall, er í byrjunarliði Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal38+4485
2Manchester City38+4278
3Manchester Utd38+1971
4Aston Villa38+765
5Liverpool38+1060
6Bournemouth38+457
7Sunderland38-654
8Brighton38+653
9Brentford38+353
10Chelsea38+652
11Fulham38-452
12Newcastle38-249
13Everton38-349
14Leeds38-747
15Crystal Palace38-1045
16Nott. Forest38-344
17Tottenham38-941
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.