Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. september 2019 21:28
Brynjar Ingi Erluson
Frakkland: Neymar kom PSG aftur til bjargar
Neymar skoraði aftur sigurmark PSG
Neymar skoraði aftur sigurmark PSG
Mynd: Getty Images
Lyon 0 - 1 PSG
0-1 Neymar ('87 )

Brasilíski snillingurinn Neymar skoraði sigurmark Paris Saint-Germain gegn Lyon í frönsku deildinni í kvöld en hann gerði það á 87. mínútu leiksins.

Neymar er ekkert sérlega vinsæll hjá stuðningsmönnum PSG eftir sumarið en hann reyndi hvað hann gat til að koma sér frá félaginu og til Barcelona. PSG gaf sig ekki í viðræðunum og vildi fá svipaða upphæð og þeir greiddu Barcelona fyrir hann árið 2017 og því slitnuðu viðræður undir lok gluggans.

Það var baulað á hann er hann spilaði á móti Strasbourg en hann kom PSG þar til bjargar með sigurmarki undir lok leiks. Hann gerði þá það nákvæmlega sama í kvöld.

Neymar skoraði eina mark leiksins á 87. mínútu og tryggði PSG þar með sigurinn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner