Fotbolti.net
21.09.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Heimska og hræsni“ - Heimir fær að heyra það frá ísraelska sambandinu

„Heimska og hræsni“ - Heimir fær að heyra það frá ísraelska sambandinu
Canon

Mynd: EPA

Írland mætir Ísrael tvisvar á næstu tveimur vikum í Þjóðadeildinni þrátt fyrir mikla andstöðu frá stuðningsmönnum við leikina sem fram fara.

Ísraelska fótboltasambandið íhugar að senda kvörtun til UEFA vegna ummæla Heimis Hallgrímssonar, landsliðsþjálfara Írlands, um þjóðarmorðið á Gaza.
Hann var spurður að því á fréttamannafundi fyrir leikina hvernig það væri að mæta Ísrael.

„Við erum ekki að spila með þjóðarmorði, við erum að spila gegn þjóðarmorði. Við erum að spila gegn Ísrael, við erum ekki að spila með Ísrael,“ sagði Heimir

Ísarelska sambandið sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfarið.

„Við höfum lagt okkar af mörkum til heimsins og mannkynsins á ótal sviðum og hlotið fjölda Nóbelsverðlauna á leiðinni. Því miður höfum við ekki enn fundið lækningu við heimsku, fáfræði og hræsni sem þjálfari Írlands sýnir," segir í yfirlýsingunni.

„Við erum ekki að spila með fáfræði, hræsni og heimsku, við erum að spila gegn þjálfaranum sem persónugerir þau.“

Áður en það var ljóst að Írland myndi mæta Ísrael sagðist Heimir vera hissa á því að Rússland hafi verið dæmt í bann en Ísrael hafi sloppið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.