Fotbolti.net
22.09.26 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson

Rúnar Már vill starfa áfram innan fótboltans

Rúnar Már vill starfa áfram innan fótboltans
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson er 36 ára gamall og hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið sökum hækkandi aldurs og tíðra meiðsla. Líkaminn er byrjaður að kvarta hástöfum.
Sorglegt að líkami og haus spilaði ekki alveg saman
TENGT EFNI

Sorglegt að líkami og haus spilaði ekki alveg saman

Rúnar Már lék meðal annars fyrir Grasshoppers í Sviss og CFR Cluj í Rúmeníu á ferlinum, auk þess að skora 2 mörk í 32 A-landsleikjum með Íslandi.

Hann var í landsliðshópnum sem náði sögulegum árangri á EM 2016 og leikur í dag með ÍA í Bestu deildinni, þar sem hann hefur þó ekki getað spilað jafn mikið og jafn vel og hann hefði óskað sér. Í stað þess að spila á miðjunni hefur Rúnar fært sig í varnarlínuna á lokametrum ferilsins.

Rúnari Má líður vel í fótboltaheiminum og vill starfa áfram innan hans eftir að skórnir fara á hilluna.

„Ég veit ekki hversu mikið ég mun vera með í lokaleikjunum. Ég hef rætt við ÍA um starf og við eigum eftir að ræða það ítarlegar næstu vikurnar fyrst ég tók þessa ákvörðun. Ég hef átt samtöl við aðra klúbba og átt samtöl við marga menn í fótboltaheiminum. Svo er bara að sjá hvað kemur upp," sagði Rúnar í ítarlegu viðtali við Fótbolta.net.

„Mjög líklega starfa ég eitthvað innan fótboltans, hvort sem það sé þjálfun eða eitthvað inn á skrifstofu. Planið er að fara í nám á næsta ári og læra hjá UEFA um sports director starfið, yfirmann fótboltamála. Ég ætla byrja að læra inn á það og sé hvað gerist. Ég er opinn fyrir öllu, þjálfari, skrifstofustarf eða fara á sjóinn."

Hann er búinn að taka allar þjálfaragráðurnar sem hann hefur getað tekið án þess að vera þjálfari.

„Ég kláraði það eftir að ég kom heim. Ef ég fer út í þjálfun, ef eitthvað býðst þar, þá mun ég halda áfram að mennta mig á því sviði."
Rúnar Már vill starfa áfram innan fótboltans
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Már vill starfa áfram innan fótboltans
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.