22.09.26 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeild kvenna: Emelía heimsótti Arsenal

Mynd: HB Köge

Mynd: Arsenal

Mynd: EPA

Mynd: HB Köge

Þremur síðustu leikjum kvöldsins er lokið í Meistaradeild kvenna og kom Emelía Óskarsdóttir við sögu í dramatísku tapi HB Köge gegn enska stórveldinu Arsenal, sem vann Meistaradeildina 2025.

TENGT EFNI
Meistaradeild kvenna: Jafnt í risaslag - Inter vann Íslendingaslag
Danska stórveldið Köge sýndi frábæra frammistöðu í London og hélst staðan markalaus allt þar til í uppbótartíma venjulegs leiktíma, þegar spænska landsliðskonan Mariona Caldentey skoraði úr vítaspyrnu.
Arsenal var sterkara liðið í leiknum en skapaði sér lítið af marktækifærum. Emelía kom inn af bekknum á 72. mínútu og fékk því að spila rúmlega 20 mínútur í tapinu nauma. Lokatölur 1-0.
Á sama tíma gerði Real Madrid jafntefli við Paris Saint-Germain í stórleik í spænsku höfuðborginni. Heimakonur í liði Real voru sterkari aðilinn stærsta hluta leiksins eftir að hafa náð forystunni snemma, en gestirnir frá París náðu að jafna með marki úr vítaspyrnu í síðari hálfleik. Lokatölur 1-1.
18 ára gömul Felicia Schröder skoraði fyrir Real áður en hin reynslumikla Sakina Karchaoui jafnaði úr víti.
Að lokum tapaði Juventus heimaleik gegn Benfica. Gestirnir frá Portúgal náðu tveggja marka forystu í nokkuð jöfnum slag áður en Alba Redondo minnkaði muninn á lokakaflanum, en nær komust heimakonur ekki. Benfica vann 1-2 þökk sé tvennu frá hinni norsku Marit Bratberg.
Arsenal W 1 - 0 Koge W
1-0 Mariona Caldentey ('93, víti)
Juventus W 1 - 2 SL Benfica W
0-1 Marit Bratberg ('40, víti)
0-2 Marit Bratberg ('61 )
1-2 Alba Redondo ('86 )
Real Madrid W 1 - 1 PSG W
1-0 Felicia Schroder ('2 )
1-1 Sakina Karchaoui ('74, víti)