Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. nóvember 2019 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Conte gefur leikmönnum kynlífsráð
Antonio Conte.
Antonio Conte.
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, þjálfari Inter á Ítalíu, er með sérstakar áherslur innan sem utan vallar.

Fram kemur hjá franska íþróttablaðinu L'Equipe að Conte gefi leikmönnum sínum sérstök ráð fyrir athafnir í svefnherberginu.

„Ég ráðlegg leikmönnum mínum að stunda kynlíf í stuttan tíma, leggi á sig litla áreynslu og séu helst í stellingu þar sem þeir eru undir maka sínum - þá helst með eiginkonum sínum," á Conte að hafa sagt við L'Equipe.

„Þá þurfa þeir ekki að sýna stórkostlega frammistöðu."

Conte, sem er fyrrum þjálfari Juventus, Chelsea og ítalska landsliðsins, tók við Inter fyrir tímabilið og er með liðið í öðru sæti Seríu A fyrir leiki helgarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner