Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 22. nóvember 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Jökull framlengir við Reading
Mark Bowen knattspyrnustjóri Reading og Jökull við undirskrift.
Mark Bowen knattspyrnustjóri Reading og Jökull við undirskrift.
Mynd: Reading
Markvörðurinn Jökull Andrésson hefur framlengt samning sinn við Reading til ársins 2022.

Jökull skrifaði undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við félagið í júlí 2018 og hann hefur nú gert nýjan samning.

Hinn 18 ára gamli Jökull hefur verið viðloðandi aðallið Reading síðan í sumar en hann lék sína fyrstu æfingaleiki með liðinu þá. Hann hefur einnig varið markið hjá U23 ára liði Reading.

Jökull var í yngri flokkum Aftureldingar áður en hann fór ungur til Englands þegar bróðir hans Axel Óskar Andrésson fór í unglingalið Reading. Axel leikur í dag með Viking í Noregi.

Jökull varði mark U19 ára landsliðs Íslands í undankeppni EM í vikunni en liðið komst áfram í milliriðla.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner