22.11.26 - 16:46
Brynjar Ingi Erluson
Annar sigurinn í röð hjá Andra

Andri Fannar byrjaði hjá Kasimpasa sem vann annan leikinn í röð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Andri Fannar Baldursson og félagar hans í Kasimpasa unnu sinn annan deildarleik í röð þegar þeir lögðu Alanyaspor að velli, 2-1, í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag.
Miðjumaðurinn lék rúman klukkutíma í sigrinum, en Kasimpasa situr í fimmta sæti deildarinnar með 23 stig og hefur ekki tapað leik síðan í byrjun október.
Hörður Björgvin Magnússon var í vörn Atromitos sem gerði 1-1 jafntefli við hans gamla félag, Levadiakos, í grísku úrvalsdeildinni. Bæði lið eru með sjö stig, en Atromitos situr í næstneðsta sæti deildarinnar.
Júlíus Magnússon var í byrjunarliði Elfsborg sem tapaði 2-1 fyrir Häcken í næstsíðustu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar.
Ari Sigurpálsson kom inn af bekknum, en Gabríel Snær Gunnarsson var ónotaður varamaður. Elfsborg er í fimmta sæti með 46 stig og á ekki lengur möguleika á að tryggja sér Evrópusæti í gegnum deildina.
Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Horsens sem vann góðan 3-1 sigur á Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni. Þá kom Valgeir Lunddal Friðriksson inn af bekknum þegar Viborg gerði markalaust jafntefli við Randers.
Horsens situr í sjöunda sæti deildarinnar með 19 stig, en Viborg er í þriðja sæti með 27 stig.