Fotbolti.net
22.11.26 - 14:01
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Andri skoraði og fiskaði víti í nágrannaslagnum

Andri Lucas kom að báðum mörkum Blackburn í dag

Andri Lucas kom að báðum mörkum Blackburn í dag

Canon

Mynd: Blackburn

Burnley 2 - 2 Blackburn
1-0 Largie Ramazani ('27 )
1-1 Andri Gudjohnsen ('31 )
2-1 Jaydon Banel ('51 )
2-2 Todd Cantwell ('74 , víti)
Andri Lucas Guðjohnsen var besti maður Blackburn Rovers í 2-2 jafntefli gegn nágrönnunum í Burnley á Turf Moor í ensku B-deildinni í dag.

Andri hefur farið á kostum á tímabilinu og raðað inn mörkum fyrir Blackburn, en hann var enn á ný í aðalhlutverki í dag.

Það var mikil spenna í kringum leikinn, ekki aðeins vegna nágrannarígs liðanna heldur einnig vegna Tony Mowbray, sem steig til hliðar sem stjóri Blackburn á dögunum af heilsufarsástæðum.

Largie Ramazani kom Burnley yfir á 27. mínútu, en sú forysta entist ekki lengi.

Andri Lucas er sjóðandi heitur þessa dagana og sjálfstraustið skín af honum, eins og sást vel í jöfnunarmarkinu. Langur bolti kom yfir vörn Burnley og Kyle Walker spilaði Andra réttstæðan. Íslenski landsliðsframherjinn komst inn fyrir vörnina og afgreiddi boltann af miklu öryggi með glæsilegu ristarskoti í fjærhornið.

Stórkostleg afgreiðsla hjá Andra sem skoraði þarna sitt ellefta deildarmark á tímabilinu.

Blackburn lenti aftur undir snemma í síðari hálfleik þegar Jaydon Banel kom Burnley í 2-1, en gestirnir voru langt frá því að gefast upp.

Og auðvitað var það Andri sem átti stóran þátt í jöfnunarmarki Blackburn á 73. mínútu. Hann kom sér þá fram fyrir varnarmann Burnley inni í vítateignum og var sparkaður niður. Réttilega var dæmd vítaspyrna sem Todd Cantwell skoraði af miklu öryggi úr.

Andri var síðan grátlega nálægt því að tryggja Blackburn sigurinn nokkrum mínútum síðar. Hann fékk boltann inni í teignum og lét vaða, en skotið small í innanverðri stönginni, fór aftur fyrir markvörð Burnley og þaðan út. Þar voru heimamenn heldur betur heppnir.

Fleiri urðu mörkin ekki á Turf Moor og þurftu liðin að sætta sig við skiptan hlut.

Blackburn situr í 13. sæti deildarinnar með 22 stig, en Burnley er í miklu basli í 22. sæti með aðeins 11 stig.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough16+1332
2Stoke City16+732
3Wolves16+931
4Birmingham16+1329
5West Brom16+829
6Southampton16+1627
7QPR16+727
8Swansea16+427
9Sheffield Utd16+625
10West Ham16+1424
11Norwich16+924
12Portsmouth16+223
13Blackburn16-122
14Wrexham16-121
15Cardiff City16-118
16Millwall16-518
17Bolton16-918
18Bristol City16-1018
19Charlton Athletic16-1117
20Lincoln City16-1215
21Watford16-1415
22Burnley16-911
23Derby County16-1810
24Preston NE16-179
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.