Fotbolti.net
22.11.26 - 15:59
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Ítalía: Mikael og Genoa aftur á sigurbraut

Genoa vann Sassuolo

Genoa vann Sassuolo

Canon

Mynd: EPA

Genoa, með Mikael Egil Ellertsson innanborðs, komst aftur á sigurbraut í Seríu A á Ítalíu með góðum 2-0 útisigri á Sassuolo í dag.
Genoa hafði unnið þrjá leiki í röð áður en liðið laut í lægra haldi fyrir AC Milan í síðustu umferð.

Liðið var staðráðið í að koma sér aftur á sigurbraut og tókst það með tveimur mörkum frá Króatanum Milutin Osmajic í fyrri hálfleiknum.

Mikael Egill var í byrjunarliði Genoa sem fagnaði góðum sigri og fór upp í tíunda sæti deildarinnar með 16 stig. Sassuolo situr hins vegar í 17. sæti með átta stig.

Bologna og Udinese skildu þá jöfn, 1-1, í sínum leik.

Nadir Zortea kom Bologna yfir undir lok fyrri hálfleiks, en Nicolo Zanilo jafnaði metin þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir.

Bologna er í níunda sæti deildarinnar með 18 stig, á meðan Udinese situr í næstneðsta sæti með aðeins sex stig.

Bologna 1 - 1 Udinese
1-0 Nadir Zortea ('43 )
1-1 Nicolo Zaniolo ('67 )

Sassuolo 0 - 2 Genoa
0-1 Milutin Osmajic ('26 )
0-2 Milutin Osmajic ('38 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.