22.11.26 - 10:52
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Liðsfélagi Benonýs með sturlað aukaspyrnumark

Ollie Norwood skoraði stórglæsilegt aukaspyrnumark

Mynd: Stockport County

Benoný Breki Andrésson var fjarri góðu gamni þegar Stockport County vann öruggan 3-0 sigur á Cambridge United í ensku C-deildinni í gær.
Framherjinn lék með U21 árs landsliði Íslands í umspilinu um sæti á EM á dögunum, en var ekki í leikmannahópi Stockport í gær vegna veikinda.
Það kom þó ekki að sök og var það Ollie Norwood sem setti tóninn með stórkostlegu aukaspyrnumarki.
Stockport fékk aukaspyrnu hægra megin við vítateiginn, úr nánast ómögulegri skotstöðu, og bjuggust flestir við að Norwood myndi senda boltann inn í teiginn.
Hann hafði hins vegar allt annað í huga og ákvað að láta vaða. Með glæsilegu utanfótarskoti náði hann ótrúlegum sveig á boltann sem söng í netinu. Algjör negla hjá Norwood.
Sigurinn kom Stockport á topp deildarinnar með 32 stig, en hægt er að sjá þetta stórglæsilega aukaspyrnumark hér fyrir neðan.

Lost for words ????
— Stockport County (@StockportCounty) November 21, 2026
#StockportCounty | @OllieNorwood_ https://t.co/3c5NVoezAU