22.11.26 - 11:44
Brynjar Ingi Erluson
Postecoglou ósáttur við blaðamann - „Þegar þú verður faðir muntu skilja það“

Ange Postecoglou

Mynd: EPA

Sadio Mane var ekki með en hann vildi vera viðstaddur fæðingu sonar síns

Mynd: EPA

Ange Postecoglou

Mynd: EPA
Ange Postecoglou, þjálfari Al Nassr í Sádi-Arabíu, var allt annað en sáttur við spurningu blaðamanns sem gagnrýndi fjarveru senegalska sóknarmannsins Sadio Mane í leik liðsins gegn Al Ahli um helgina.
Mane var ekki með þegar Al Nassr tapaði 3-1 fyrir Al Ahli, en blaðamaðurinn gerði athugasemd við fjarveru hans þrátt fyrir að ástæðan væri sú að hann vildi vera viðstaddur fæðingu sonar síns.
Postecoglou kom Mane strax til varnar og benti á að hann hefði sjálfur gefið honum leyfi til að vera með fjölskyldunni á þessum stóru tímamótum, enda væru þau mun mikilvægari en nokkur fótboltaleikur.
„Ertu faðir? Nei? Það er líklega ástæðan fyrir því að þú spyrð þessarar spurningar. Þegar þú verður faðir muntu skilja að þetta er eitt það mikilvægasta sem manneskja upplifir í lífinu og ekkert er mikilvægara en það.“
„Hann er hjá eiginkonu sinni þegar hún er að fæða barnið þeirra og ég gaf honum leyfi til þess, að sjálfsögðu. Hann er ein besta manneskja sem ég þekki, svo ekki láta þér detta í hug að efast um hann eða hversu mikið hann leggur sig fram fyrir félagið,“ sagði Postecoglou.

Ange Postecoglou put a reporter in line after they questioned Sadio Mane’s Al-Nassr absence due to birth of his second child. https://t.co/sPeeigmD62
— Sacha Pisani (@Sachk0) November 21, 2026