Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. janúar 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Son og Lloris blása á óánægju með Mourinho
Hugo Lloris.
Hugo Lloris.
Mynd: Getty Images
Heung-Min Son og Hugo Lloris, leikmenn Tottenham, hafa báðir blásið á sögusagnir þess efnis að leikmenn liðsins séu óánægðir með taktík og æfingaaðferðir Jose Mourinho.

„Andrúmsloftið í hópnum er frábært," sagði Lloris eftir 2-1 sigurinn á Norwich í gær en hann sneri þá aftur eftir langa fjarveru.

„Allir leikmennirnir eru tilbúnir að berjast fyrir nýja stjórann og starfsfólkið hans."

Son skoraði sigurmarkið í gær og hann tók undir með Lloris eftir leik.

„Allir eru ánægðir. Við erum að vinna góða vinnu," sagði Son.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner