Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 23. janúar 2022 12:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Allar líkur á því að Alli fari í janúar - Ekki í hóp í dag
Mynd: Getty Images
Það er Lundúnarslagur í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar Chelsea fær Tottenham í heimsókn.

Leikurinn er síðasti leikur helgarinnar og hefst kl 16:30. Það vekur athygli að Dele Alli er ekki í leikmannahópi Tottenham fyrir leikinn.

Hann hefur verið sterklega orðaður í burtu frá félaginu í janúar og það virðist vera að ganga í gegn en hann hefur verið ónotaður varamaður í síðustu tveimur leikjum liðsins.

Alli hefur leikið 10 leiki á tímabilinu og það er ljóst að hann er ekki í áformum Antonio Conte. Leikurinn í dag er síðasti leikurinn fyrir lok félagsskiptagluggans og það virðist sem svo að Alli sé búinn að fá sitt síðasta tækifæri til að sanna sig.

Hann er sagður fara á láni en Tottenham er tilbúið að selja hann strax í janúar.
Athugasemdir
banner
banner