Alaves 0 - 1 Barcelona
0-1 Frenkie de Jong ('87 )
0-1 Frenkie de Jong ('87 )
Miðjumaðurinn Frenkie de Jong reyndist hetja Barcelona þegar liðið lagði Alaves að velli í spænsku úrvalsdeildinni.
Barcelona var mun meira með boltann í leiknum en Alaves fékk hættulegri færin til að skora. Staðan var markalaus alveg fram á 87. mínútu.
Þá skoraði De Jong eftir sendingu frá Ferran Torres. Markið var skoðað í VAR og var kannað fyrir rangstöðu. Engin rangstaða var niðurstaðan.
Lokatölur 1-0 fyrir Barcelona sem er núna í fimmta sæti með 31 stig og færist liðið nær því að vera á meðal efstu fjögurra. Gríðarlega svekkjandi fyrir Alaves sem er í 19. sæti.
Önnur úrslit í dag:
Spánn: Real Madrid jafnaði metin í uppbótartímanum
Athugasemdir