23.02.20 - 21:54
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Atletico vann Evrópuslag og tók þriðja sætið

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Atletico Madrid 3 - 1 Villarreal
0-1 Paco Alcacer ('16)
1-1 Angel Correa ('40)
2-1 Koke ('64)
3-1 Joao Felix ('74)
0-1 Paco Alcacer ('16)
1-1 Angel Correa ('40)
2-1 Koke ('64)
3-1 Joao Felix ('74)
Atletico Madrid tók á móti Villarreal í Evrópubaráttunni á Spáni og lenti undir eftir stundarfjórðung, þegar Paco Alcacer skoraði með góðu skoti rétt fyrir utan teig.
Heimamenn voru mun betri fyrir leikhlé og verðskulduðu jöfnunarmarkið sem Angel Correa skoraði á 40. mínútu, eftir frábæra sendingu frá Sime Vrsaljko.
Síðari hálfleikurinn var talsvert jafnari en færanýting Atletico gerði gæfumuninn.
Koke skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Correa á 64. mínútu og bætti Joao Felix við marki tíu mínútum síðar.
Felix innsiglaði þannig sigurinn og er Atletico búið að taka þriðja sæti deildarinnar af Sevilla á markatölu. Villarreal er áfram í sjöunda sæti, tveimur stigum frá Evrópusvæðinu.

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 10 | +29 | 27 |
| 2 | Atletico Madrid | 10 | +12 | 25 |
| 3 | Real Madrid | 10 | +15 | 24 |
| 4 | Betis | 10 | +2 | 20 |
| 5 | Real Sociedad | 10 | +1 | 19 |
| 6 | Sevilla | 10 | 0 | 17 |
| 7 | Alaves | 10 | +3 | 12 |
| 8 | Athletic | 9 | +3 | 12 |
| 9 | Celta | 10 | +3 | 12 |
| 10 | Villarreal | 10 | +1 | 12 |
| 11 | Deportivo | 10 | 0 | 11 |
| 12 | Osasuna | 10 | -10 | 11 |
| 13 | Racing Santander | 10 | -11 | 11 |
| 14 | Levante | 10 | -3 | 10 |
| 15 | Elche | 10 | -3 | 10 |
| 16 | Vallecano | 9 | -8 | 9 |
| 17 | Getafe | 10 | -10 | 9 |
| 18 | Espanyol | 10 | -2 | 8 |
| 19 | Valencia | 10 | -10 | 6 |
| 20 | Malaga | 10 | -12 | 5 |