Fotbolti.net
26.11.26 - 19:01
Ívan Guðjón Baldursson

Mourinho um hálfleiksræðuna: Mynd segir meira en þúsund orð

Mourinho um hálfleiksræðuna: Mynd segir meira en þúsund orð
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
José Mourinho, þjálfari Real Madrid, var hress eftir magnaðan endurkomusigur lærlinga sinna sem voru 0-1 undir í hálfleik gegn PSV Eindhoven er liðin mættust í Meistaradeildinni í vikunni.
Mourinho: Það sem gerist í Vegas, verður eftir í Vegas
TENGT EFNI

Mourinho: Það sem gerist í Vegas, verður eftir í Vegas

Mourinho gerði þrefalda skiptingu í leikhlé og skapaði Real urmul dauðafæra svo lokatölur urðu 5-1. En hvað gerði hann í hálfleik til þess að hvetja sína menn til dáða?

„Ég sá hræðilegan fyrri hálfleik og fékk hjálp frá leikgreinendunum við að finna þrjár eða fjórar myndir til að sýna leikmönnum nákvæmlega hvað var að fara úrskeiðis," sagði Mourinho eftir sigurinn.

„Þetta var hálfsleikræða með lítið af orðum út af því að mynd segir meira en þúsund orð. Við horfðum á þrjár mismunandi myndir og mér finnst að leikmenn eigi talsvert auðveldara með að skilja og meðtaka aðstæður með myndum frekar en leiðbeiningum einum og sér."

Jude Bellingham sat á bekknum allan fyrri hálfleikinn og breyttist spilamennska heimamanna við innkomu hans á völlinn beint eftir hálfleikshléð.

„Ég hélt við gætum unnið án Jude en mér hefur kannski skjátlast. Ég ákvað að reyna að hvíla hann aðeins en hann breytti leiknum þegar hann kom inn á."
Mourinho um hálfleiksræðuna: Mynd segir meira en þúsund orð
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeildin

#LiðLmunStig
1Real Madrid5+1015
2PSG5+1513
3Como5+1412
4Barcelona5+1112
5Liverpool5+712
6Betis5+412
7Arsenal5+511
8Man City5+510
9Sporting5+410
10Dortmund5+210
11Aston Villa5+59
12Inter5+49
13Club Brugge5+19
14Galatasaray509
15Bayern5+68
16Fenerbahce5-48
17Stuttgart5+17
18Atletico Madrid5+17
19Man Utd507
20Bodö/Glimt5-47
21LASK Linz506
22Porto506
23RB Leipzig5-46
24Villarreal5-56
25Roma5+25
26Shakhtar D5-14
27Viking FK5-34
28Napoli5-54
29Lille5-54
30PSV5-54
31AEK5-73
32Feyenoord5-83
33Sabah FK5-93
34Lens5-143
35Slavia Prag5-51
36Slovan5-180
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.