Í dag var fjallað um slæmt ástand í Mexíkó eftir að herinn þar í landi drap El Mencho sem var höfuðpaur stærsta eiturlyfjahrings landsins. Í kjölfarið var fótboltaleikjum í Mexíkó frestað, þar á meðal í Queretaro í gær, en þar á Ísland að mæta Mexíkó í vináttuleik.
Þegar þetta er skrifað lítur út fyrir að vináttuleikur Íslands og Mexíkó muni fara fram á miðvikudagskvöld. Leikurinn á að hefjast 02:00 aðfaranótt fimmtudags að íslenskum tíma.
Fótbolti.net ræddi við Ágúst Orra Þorsteinsson í dag en hann er hluti af 20 manna landsliði Íslands.
Þegar þetta er skrifað lítur út fyrir að vináttuleikur Íslands og Mexíkó muni fara fram á miðvikudagskvöld. Leikurinn á að hefjast 02:00 aðfaranótt fimmtudags að íslenskum tíma.
Fótbolti.net ræddi við Ágúst Orra Þorsteinsson í dag en hann er hluti af 20 manna landsliði Íslands.
„Það er mjög gaman, sólin skín og gott veður," sagði Ágúst Orri við Fótbolta.net í hádeginu í dag. „Við komum á laugardaginn, tókum æfingu í ræktinni fyrsta daginn og svo æfðum við á grasi í gær. Svo er æfing núna seinni partinn, á morgun og loks leikur á miðvikudagskvöld. Æfingasvæðið er mjög fínt, mjög gott gras."
„Ferðalagið var langt, en það gekk vel. Ég er búinn að ná mér, hef náð sofa vel, er ferskur og spenntur að mæta á æfingu á eftir."
Ágúst er vanur því að æfa og spila á gervigrasi. Finnur þú einhvern mun á því?
„Það er mjög mikill munur, sitthvor íþróttin eiginlega. Ég er vanur því að spila á grasi með yngri landsliðunum og síðan eitthvað úti í Genoa líka. Ég er nokkuð vanur, en þetta er allt annað en gervigras. Mér líður mjög vel á grasi."
Ágúst var spurður út í fréttirnar sem bárust frá Mexíkó í dag og í gær. Finnur þú eitthvað fyrir því að það sé ólga í landinu?
„Nei, ég finn ekkert fyrir þessu. Við erum vel upplýstir frá KSÍ og það er fylgst með fréttum. Þegar við erum að ræða saman hefur engin ákvörðun verið tekin um að fresta eða hætta við leiknum, þannig við höldum bara okkar striki."
Fékkst þú einhverja óþægindatilfinningu þegar þú heyrðir af þessu?
„Það var smá sjokk þegar maður heyrði af þessu fyrst. En ég held að við séum bara góðir," sagði Ágúst Orri.
Nánar var rætt við Ágúst um landsliðsvalið og ýmislegt annað. Meira úr viðtalinu verður birt á morgun.
Athugasemdir




