Fotbolti.net
23.02.26 - 14:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Allt sauð upp úr er ÍBV mætti spænsku liði

Vicente Valor skoraði eina mark leiksins.

Vicente Valor skoraði eina mark leiksins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV 1 - 0 Minera
1-0 Vicente Valor

ÍBV mætti í dag spænska liðinu Club Deportiva Minera á Pinatar á Spáni. ÍBV er þar í æfingaferð, en í síðustu viku lögðu Eyjamenn danska liðið Álaborg að velli.

Spænski miðjumaðurinn Vicente Valor skoraði eina mark leiksins en flautað var af í hálfleik þar sem allt hafði soðið upp úr.
ÍBV lagði Álaborg
TENGT EFNI

ÍBV lagði Álaborg

Samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolti.net hefur fengið voru Spánverjarnir blóðheitir og vildu frekar skiptast á höggum en að spila leikinn. Minera er í fjórðu efstu deild á Spáni, Segunda Federacion.

Tveir leikmenn léku á reynslu með ÍBV í leiknum. Vinstri kantmaðurinn Pablo Aguilera Simon er annar þeirra en hann lék með Fylki á síðasta tímabili. Hinn heitir, eða er kallaður, Pisco, spilar sem varnarsinnaður miðjumaður en Fótbolti.net hefur ekki fengið frekari upplýsingar um leikmanninn.
Byrjunarlið ÍBV - Efri röð frá vinstri: Áki, Arnór Ingi, Arnar Breki, Eiður Atli, Sigurður Arnar. Neðri röð frá vinstri: Sesar Örn, Róbert Elís, Milan Tomic, Vicente, Pisco og Pablo.

Byrjunarlið ÍBV - Efri röð frá vinstri: Áki, Arnór Ingi, Arnar Breki, Eiður Atli, Sigurður Arnar. Neðri röð frá vinstri: Sesar Örn, Róbert Elís, Milan Tomic, Vicente, Pisco og Pablo.

Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.