Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   mán 23. febrúar 2026 19:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Carrick: Sesko verður mikilvægur fyrir félagið
Mynd: EPA
Það vekur athygli að Michael Carrick hafi ekki valið Benjamin Sesko í byrjunarlið Man Utd fyrir leik liðsins gegn Everton í kvöld en Sesko hefur komið sterkur af bekknum undanfarið og skorað tvö mörk í síðustu þremur leikjum.

Sesko er 22 ára gamall en hann gekk til liðs við félagið frá RB Leipzig síðasta sumar. Hann hefur skorað sex mörk i 21 leik í úrvalsdeildinni.

„Hann er enn að læra, hann er enn ungur og enn að aðlagast lífinu hér líka. Ég er himinlifandi yfir því hvernig hann er að þróast. Hann er að taka stór skref, jafnvel á þeim stutta tíma sem við höfum verið saman. Og hann er á góðum stað."

„Hann verður mikilvægur leikmaður hjá þessu félagi. Ég hef lengi verið mjög hrifinn af því sem hann hefur gert nú þegar, en ég held að það sé margt fleira í vændum frá honum, svo ég er mjög spenntur fyrir því.“


Þá staðfesti Carrick að Lisandro Martínez hafi orðið fyrir meiðslum í vikunni en búist er við því að hann verði fjarverandi í allt að tvær vikur.
Athugasemdir
banner
banner
banner