Man Utd er enn taplaust undir stjórn Michael Carrick en liðið þurfti að kafa djúpt til að næla í sigur gegn Everton í kvöld.
Benjamin Sesko kom inn á og skoraði eina mark leiksins en hann hefur skorað þrjú mörk í síðustu fjórum leikjum, öllum sem varamaður.
Benjamin Sesko kom inn á og skoraði eina mark leiksins en hann hefur skorað þrjú mörk í síðustu fjórum leikjum, öllum sem varamaður.
„Við vorum með fjóra sigra í röð í fyrstu fjórum leikjunum og nokkrar mjög góðar frammistöður þar. Ég bjóst við tímabili þar sem við þyrftum að finna okkur aðeins til og ná úrslitum. Við gerðum það að vissu marki gegn West Ham og við gerðum það í dag," sagði Carrick.
„Þessi andi, fórnfýsi og vilji til að vinna fyrir hvorn annan sem lið. Hvernig við þurftum að verjast í vítateignum okkar saman í lok leiksins. Að lokum héldum við hreinu og þetta var risastór sigur fyrir okkur.“
„Þetta var ekki auðvelt fyrir okkur í kvöld. Ég hef aldrei átt auðveldan leik gegn Everton. Strákarnir hafa æft vel og við komum inn í þennan leik með góða tilfinningu. Þetta var eitt af þessum kvöldum fyrir okkur. Við þurftum að kafa djúpt. Þetta var stundum erfitt en það eru bestu sigrarnir," sagði Carrick að lokum.
Athugasemdir




