Fotbolti.net
23.02.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England í dag - Everton spilar við Man Utd

England í dag - Everton spilar við Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Everton og Manchester United eigast við í mánudagsleik ensku úrvalsdeildarinnar þar sem bæði lið eru að mæta til leiks eftir tveggja vikna hvíld.
Síðasta helgi var notuð í enska bikarinn en bæði Everton og Man Utd voru dottin úr leik. Leikmenn fengu því kærkomið frí á milli leikja eftir erfiða törn í kringum áramótin.

Everton tapaði heimaleik gegn Bournemouth í síðustu umferð á meðan Manchester United gerði jafntefli við West Ham, en báðum liðum hafði verið að ganga vel fyrir það.

Man Utd var með fjóra sigra í röð undir stjórn Michael Carrick fyrir jafnteflisleikinn í London og var Everton ósigrað í fjórum leikjum fyrir tapið á heimavelli.

Jack Grealish og Jake O'Brien verða fjarverandi í liði Everton og er Patrick Dorgu meiddur hjá Rauðu djöflunum.

Það eru átta stig sem skilja þessi tvö félög að í baráttu um evrópusætin, þar sem Man Utd deilir 4.-6. sæti deildarinnar með Chelsea og Liverpool. Liðin eru jöfn með 45 stig og fær United tækifæri til að endurheimta fjórða sætið með sigri í kvöld.

Leikur kvöldsins
20:00 Everton - Man Utd
England í dag - Everton spilar við Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.